Fréttir
Landssamtök skógareigenda, Miðhúsum, 701 Egilsstöðum, Sími: 471 1365, Gsm: 860 2928, eiksf@mmedia.is



Aðalfundur Félags skógarbænda á Vesturlandi verður haldinn á Hótel Hamri í Borgarfirði þriðjudaginn 3. apríl
2012 kl. 18:00. nánar hér
_____________________________________________________________________________________
Hollvinir og netföng
Hollvinir Landbúnaðarháskóla Íslands fá öðru hvoru tölvupósta um það sem er að gerast í Landbúnaðarháskóla Íslands.
Hollvinir teljast þeir sem stunduðu nám við LbhÍ eða þær stofnanir sem síðar mynduðu Landbúnaðarháskóla Íslands.
Hollvinir eru líka núverandi og fyrrverandi starfsmenn eða aðrir sem einfaldlega vilja fylgjast með starfinu á Reykjum
og/eða Hvanneyri. Sendið tölvupóst með nafni, kennitölu og heimili – og netfangi – til Áskels Þórissonar á Hvanneyri.
Netfang hans er askell@lbhi.is
_______________________________________________________________________________________________
Félagsfundur á Góu, 25. febrúar 2012, kl. 16.00
að Hótel Heklu á Skeiðum
Dagskrá fundarins:
Kl. 16.00, laugardaginn 25. febrúar
* Erindi, formaður Félags landeigenda, Örn Bergsson
* Aðalsteinn Sigurgeirsson sérfræðingur hjá Skógrækt ríkisins á Mógilsá, flytur erindi
* Umræður
* Kvöldverður, sem þarf að bóka sig í, hjá Sigrúnu í síma 771 1619
Þeir sem vilja gista, bóki sig hjá Sigrúnu á Hótel Heklu, netfangið er info@hotelhekla.is
eða í síma 771 1619, sem tekur við pöntunum í gistingu og kvöldverð.
Verð á mann í 2ja manna herbergi með morgunverði er kr. 6.500.
3ja rétta veislukvöldverður, kr. 6.000 fyrir manninn.
Panta þarf sem allra fyrst.
____________________________________________________________________________________
Fagráðstefna skógræktar 2012
Þema: Tegundir, kvæmi og klónar í íslenskri skógrækt.
Ráðstefnan er árleg og hefð er fyrir því að hún flakkar réttsælis um landið og er alltaf haldin á nýjum stað. Að þessu sinni
verður hún haldin verður á Fosshótel Húsavík dagana 27. - 29. mars n.k.
Skráning á ráðstefnuna fer fram til 1. mars í tölvupóst nls@nls.is eða í síma 461-5640
Allar nánari upplýsingar eru að finna á http://www.skogur.is/fagradstefna2012
_____________________________________________________________________________________
Málstofa um áherslur nýrra skógræktarlaga.
Nefnd, sem umhverfisráðherra skipaði á vordögum til að semja greinargerð um inntak og áherslur nýrra skógræktarlaga
boðar til málstofu til að kalla eftir sjónarmiðum og ábendingum varðandi vinnu nefndarinnar. Þar mun formaður
nefndarinnar, Valgerður Jónsdóttir hafa framsögu og síðan verða opnar umræður.
Tilgangur málstofanna er að fá ábendingar og tillögur sem nýst geta við áframhaldandi vinnu. Boðað er til tveggja
málstofa, á Egilsstöðum og í Reykjavík. Málstofurnar eru öllum opnar og hvetur nefndin alla þá sem láta sig málefni
skógræktar varða að taka þátt.
Haldnar verða tvær málstofur á eftirfarandi stöðum:
Hótel Héraði, Egilsstöðum, mánudaginn 7. nóvember kl. 13:00 - 15:00
Þjóðminjasafnið í Reykjavík, þriðjudaginn 8. nóvember kl. 14:00 - 16:00
http://www.umhverfisraduneyti.is/frettir/nr/1929
_______________________________________________________________________________________________
Stefnumótun.
Framtíðarsýn Landssamtaka skógareigenda 2011-2020
_____________________________________________________________________________________
Einstakt tækifæri.
22. október n.k. verður haldin ráðstefna í Kaldalóni í Hörpu, undir yfirskriftinni “Heimsins græna gull”. Ráðstefnan er
haldin á Ári skóga Sameinuðu þjóðanna 2011. Erlendir fyrirlesarar eru allir þekktir innan skógargeirans á evrópuvísu og
heimsvísu. Þetta er því ráðastefna sem fátt áhugafólk um skógrækt mun láta fram hjá sér fara.
ATH. Þeir sem vilja geta hlustað á fyrirlestra á íslensku á ráðstefnunni.
Rástefnugjaldið er vel niðurgreitt og er einungis 7.000.- (matur innifalinn)
Skráning á ráðstefnuna fer fram: http://www.skogur.is/rannsoknir-og-verkefni/radstefnur/radstefnur-arid-
2011/heimsins-graena-gull
_______________________________________________________________________________________________
Ágætu skógareigendur !
Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda verður haldinn að Eiðum á Héraði 7. og 8. október n.k. Sjá dagskrá fundarins
hér
Kostnaður á mann í tvær nætur í 2ja manna herbergi er kr. 22.000.-
Innifalið er allur fundarkostnaður, morgunmatur, kaffi, kvöldmatur, hádegismatur laugardag, hátíðarkvöldverður og ferð í
......skóg.
Fundurinn hefst kl. 17:00 á föstudeginum og lýkur formlega með árshátíð skógarbænda og afmælishátíð Héraðs- og
Austurlandsskóga á laugardagskvöldið.
Þátttakendur eru beðnir að tilkynna sig á tölvupóstfangið marianna@me.is fyrir 1. október.
Þeir sem koma á fundinn, en gista ekki, eru beðnir að skrá sig á tölvupóstfangið breidavad@emax.is
Ráðstefna LSE verður haldin í tengslum við aðalfundinn og stendur frá 13:00 til 16:30 föstudaginn 7. október.
Sjá dagskrá ráðstefnunnar hér
Aðalfundur jólatrjáaræktenda verður sömuleiðis haldinn í tengslum við aðalfund LSE og hefst klukkan 20:00 föstudaginn 7.
október og stendur til ca. 21:30:00.
Barstemmning á föstudags og laugardagskvöld þar sem drykkir verða seldir gegn vægu gjaldi/u.þ.b kostnaðarverði.
Með félagskveðju,
skógarbændur á Austurlandi.
_______________________________________________________________________________________________
Skógardagurinn mikli 2011 Sjá auglýsingu hér
Föstudagurinn 24. júní
19:00 Landssamtök sauðfjárbænda ásamt sauðfjárbændum á svæðinu
bjóða gestum og gangandi að smakka grillað lambaket.
Laugardagurinn 25. júní – Þessi skemmtilegi dagur !
10:00 Perlu-ganga frá Hússtjórnarskólanum á Hallormsstað upp í Bjargselsbotna
undir stjórn Hjördísar Hilmarsdóttur
12:00 Skógarhlaupið, 14 km um erfiða skógarstíga, í boði Alcoa
12:30 Skemmtiskokk fjölskyldurnar, 4 km sem allir geta tekið þátt í
Formleg dagskrá hefst í Mörkinni kl. 13:00
- Íslandsmótið í skógarhöggi
- Pjakkur og Petra taka skógardagslagið
- Heilgrillað Héraðsnaut borið fram af skógarbændum
- Skátarnir sjá um skógarþrautir fyrir unga og aldna
- Ingó veðurguð tekur lagið
- Pylsur í hundraðavís, ketilkaffi og lummur að hætti skógarmanna
- Hinn eini sanni Bjartmar Guðlaugsson tekur lagið
- Verðlaunaafhending í Skógarhlaupinu
- Íslandsmeistarinn í skógarhöggi krýndur
17:00 Allir fara heim saddir og kátir
_______________________________________________________________________________________________
Áhugaverð grein hérna
_____________________________________________________________________________________
Nánar: Hér