





Lög Félags skógarbænda á Vesturlandi
1. gr.
Félagið heitir Félag skógarbænda á Vesturlandi. Félagssvæði þess er Vesturlands-kjördæmi. Heimili félagsins og
varnarþing er heimili formanns.
2. gr.
Félagsmenn geta þeir orðið sem eru eigendur og/eða ábúendur lögbýla á Vesturlandi og stunda eða hyggjast stunda
skógrækt á jörðum sínum eða taka þátt í samstarfsverkefnum með Landgræðslunni. 1)
3. gr.
Skógrækt í skilningi þessara laga er ræktun jólatrjáa, timburskóga, skjólbelta og fjölnytjaskóga. Með fjölnytjaskógum
er átt við ræktun skóga til almennra landbóta, fegrunar, útivistar og yndisauka.
4. gr.
Hlutverk félagsins er:
1. Að vera samtök og málsvari þeirra sem vinna að eða hyggjast vinna að ræktun skóga á lögbýlum á
félagssvæðinu.
2. Að efla samheldni með félagsmönnum og vera vettvangur almennrar umræðu og fræðslu um skógrækt.
3. Að gæta hagsmuna félagsmanna í hvívetna og vera í fyrirsvari fyrir þá gagnvart þriðja aðila óski félagsmenn
eftir því, t.d. samskipti og samningsgerð við Vesturlandsskóga 2) o.fl. aðila.
5. gr.
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda fyrir lok aprílmánaðar ár hvert og til hans boðað
bréflega með minnst viku fyrirvara og er hann þá lögmætur.
Afl atkvæða ræður úrslitum mála nema annars sé getið í lögum þessum.
Á aðalfundi skal kjósa stjórn og aðra trúnaðarmenn úr hópi félagsmanna. Kosningar skulu vera bundnar
(uppástungur). Sé stungið upp á fleiri mönnum en kjósa skal, skal kosning vera skrifleg og leynileg. Aðalfundur getur
ákveðið að kosningar séu óbundnar og leynilegar.
Á aðalfundi gerir stjórn félagsins grein fyrir störfum á liðnu starfsári og leggur fram endurskoðaða reikninga.
Reikningsár félagsins er almanaksárið.
Árgjöld félagsmanna skulu ákveðin árlega á aðalfundi. Eitt árgjald greiðist af hjónum og sambýlisfólki.
Stjórn félagsins getur boðað til félagsfundar þegar hún telur ástæðu til eða 1/3 hluti félagsmanna æskir þess. Skal
boðað til aukafunda með sama hætti og til aðalfundar.
6. gr.
Stjórn félagsins skipa þrír félagsmenn, kjörnir til þriggja ára, einn hvert ár og skal hlutkesti ráða röð þeirra. Stjórnin
skiptir sjálf með sér verkum að loknum aðalfundi.
Varamenn í stjórn eru þrír, kosnir til eins árs.
Skoðunarmenn reikninga eru tveir, kosnir úr hópi félagsmanna til eins árs í senn.
Ritari félagsins er jafnframt varaformaður þess.
Aðalfundur tilnefnir einn aðalmann og einn varamann félagsins í stjórn Vesturlandsskóga til fjögurra ára í senn 1).
Jafnframt skal árlega kjósa einn varamann sem skoðunarmann reikninga 2).
7. gr.
Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi. Tillögur til lagabreytinga skulu berast stjórninni fyrir 15. mars og
skulu þær sendar út með boðun aðalfundar.
Minnst 2/3 hluta atkvæða á aðalfundi þarf til að breyta lögum félagsins.
8. gr.
Nú kemur fram tillaga um að félaginu skuli slitið og skal hún þá sæta sömu meðferð sem tillaga til lagabreytinga skv. 7.
gr.
9. gr.
Lög þessi taka gildi með samþykkt stofnfundar félagsins 23. dag júnímánaðar 1997


Lög FsV
Landssamtök skógareigenda, Miðhúsum, 701 Egilsstöðum, Sími: 471 1365, Gsm: 860 2928, eiksf@mmedia.is