




á slíku félagi þar sem skógrækt er sú búgrein sem vaxið hefur hvað mest síðustu ár.
Skógarbændur eru nú um 700 talsins um allt land og er nauðsinlegt að þeir geti haft
áhrif á vöxt og viðgang greinarinnar, en til þess þurfum við að hafa öflugt félag. FsV
tilnefnir einn mann í stjórn Vesturlandsskóga og hefur þannig möguleika á að tryggja
hagsmuni skógarbænda innan verkefnisins. Sex félög skógarbænda víða um land
Árlega eru haldnir aðalfundir þar sem félagsmenn hittast, ræða sín mál og slá á létta
strengi að hætti skógarmanna. LSE eru félagar í Bændasamtökum Íslands og eiga
fulltrúa á Búnaðarþingi.
Hlutverk félagsins er:
1. Að vera samtök og málsvari þeirra sem vinna að eða hyggjast vinna að ræktun
skóga á lögbýlum á félagssvæðinu.
2. Að efla samheldni með félagsmönnum og vera vettvangur almennrar umræðu og
fræðslu um skógrækt.
3. Að gæta hagsmuna félagsmanna í hvívetna og vera í fyrirsvari fyrir þá gagnvart
þriðja aðila óski félagsmenn eftir því, t.d. samskipti og samningsgerð við
Vesturlandsskóga 2) o.fl. aðila.
Við hvetjum alla nýja skógarbændur til að ganga í félagið.
Með skógræktarkveðju,
Félag skógarbænda á Vesturlandi.

Um FsV
Mynd: Tóti
Mynd: Tóti
Mynd: Tóti
Mynd: Tóti
Landssamtök skógareigenda, Miðhúsum, 701 Egilsstöðum, Sími: 471 1365, Gsm: 860 2928, eiksf@mmedia.is