Lög FsN

1. grein.
Félagið heitir Félag skógarbænda á Norðurlandi. Félagssvæði þess nær yfir Húnavatnssýslur, Skagafjarðarsýslu,
Eyjafjarðarsýslu og Þingeyjarsýslur. Heimili og varnarþing er heimili formanns hverju sinni.
2. grein.
Rétt til aðildar að félaginu hafa þeir sem á bújörðum stunda skógrækt til einhverra nota, s.s. til viðarframleiðslu, vegna
ferðaþjónustu, útivistar eða landgræðslu.
3. grein.
Tilgangur félagsins er:
1. Að sameina alla skógarbændur á Norðurlandi í eitt félag.
2. Að bæta aðstöðu til skógræktar sem atvinnugreinar með átaksverkefni um Norðurskóga.
3. Að hafa samvinnu við fagaðila um leiðbeiningar á sviði skógræktar, standa fyrir fræðslufundum og leita eftir
sanmvinnu við menntastofnanir um námskeiðahald og gerð fræðsluefnis.
4. Að vera félagsmönnum til aðstoðar við samningsgerð við opinbera aðila og aðra þá sem þeir hafa samskipti við
vegna skógræktar.
5. Að leita markaða fyrir skógarafurðir.
4. grein.
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Skal hann haldinn fyrir 15. apríl ár hvert og til hans boðað
bréflega með minnst 10 daga fyrirvara.
Þar skal kjósa stjórn og aðra trúnaðarmenn úr hópi félagsmanna. Kosningar skulu vera skriflegar.
Á aðalfundi skal stjórn leggja fram til umræðu og samþykktar:
1. Skýrslu um störf félagsins á sl. ári.
2. Endurskoðaða reikninga fyrir almanaksár.
3. Fjárhagsáætlun og tillögum um starfsemi félagsins á næsta ári.
4. Tillögu um árgjald félagsmanna.
5. grein.
Aðalfundur er lögmætur, sé löglega til hans boðað. Stjórn félagsins getur boðað til aukafundar þegar hún telur þess
þörf og einnig getur 1/3 félagsmanna óskað fundar. Skal til hans boðað með sama hætti og aðalfundar.
6. grein.
Stjórn félagsins skipa fimm menn og jafn margir til vara. Kjörtímabil er þrjú ár, þannig að tvö fyrstu árin skal kjósa um
tvo stjórnarmenn og tvo varamenn, þriðja árið skal kjósa um einn stjórnarmann og einn varamann.
Stjórnin skiptir með sér verkum að loknim aðalfundi.
Tveir skoðunarmenn og varamenn þeirra skulu kosnir árlega..
Stjórn félagsins fer með málefni þess milli aðalfunda. Hún má ekki skuldbinda félagið fjárhagslega umfram það, sem
fram kemur í samþykktum aðalfundar. Stjórnin heldur skrá yfir félaga og skal hún liggja frammi á aðalfundi.
Skuldi félagsmaður árgjald liðins árs, missir hann réttindi sín í félaginu.
Til þess að öðlast þau á ný, skal viðkomandi greiða skuld sína.
7. grein.
Lög þessi öðlast gildi meðsamþykkt stofnfundar félagsins. Tillögur til lagabreytinga skulu berast stjórn félagsins eigi
síðar en mánuði fyrir aðalfund og skulu þær sendar út með fundarboði. Til að breyta lögum, þarf samþykki 2/3 hluta
greiddra atkvæða á aðalfundi.
Ákvæði til bráðabirgða.
Á fyrstu tveim aðalfundum eftir stofnfund, ræður hlutkesti hvaða stjórnarmenn og varamenn skuli ganga úr stjórninni.
Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi félagsins í Laugaborg í Eyjafjarðarsveit þann 26. nóvember 1997.