Ágætu skógarbændur!

Við vilum vekja athygli ykkar á Félagi skógarbænda á Norðurlandi. Félagið er
hagsmunafélag skógarbænda og er nauðsynlegt þegar svo margir bændur stunda
þessa nýju búgrein.

Tilgangur félagsins er m.a. að bæta aðstöðu skógræktar sem atvinnugreinar og
stuðla að fræðslu til skógarbænda. Félagið tilnefnir einn mann í stjórn
Norðurlandsskóga og reynir á þann hátt að tryggja hagsmuni skógarbænda innan
verkefnisins. Sambærileg félög starfa í öðrum landshlutum og regnhlífarsamtök
þessara eru Landsamtök skógareigenda (LSE) sem starfa líkt og önnur
búgreinasamtök. LSE eru félagar í Bændasamtökum Íslands og eiga fulltrúa á
Búnaðarþingi.

Félagið gefur út fréttabréf “Björkina” í samstarfi við Norðurlandsskóga og sendir
félagsmönnum nokkrum sinnum á ári. Björkinni er ætlað að auglýsa
skógrækaruppákomur og námskeiðahald og koma á framfæri bæði faglegum og
handhægum upplýsingum frá stjórn félagsins og Norðurlandsskógum. Síðast en ekki
síst eru félagsmenn hvattir til að nýta bréfið til að koma skoðunum sínum á framfæri
varðandi hagsmunamál skógarbænda og miðla reynslu sinni til annarra í félaginu.

Við hvetjum alla nýja skógarbændur til að
ganga í félagið.
Um FsN