Fréttir
Landssamtök skógareigenda, Miðhúsum, 701 Egilsstöðum, Sími: 471 1365, Gsm: 860 2928, eiksf@mmedia.is



Málstofa um áherslur nýrra skógræktarlaga.
Nefnd, sem umhverfisráðherra skipaði á vordögum til að semja greinargerð um inntak og áherslur nýrra skógræktarlaga
boðar til málstofu til að kalla eftir sjónarmiðum og ábendingum varðandi vinnu nefndarinnar. Þar mun formaður
nefndarinnar, Valgerður Jónsdóttir hafa framsögu og síðan verða opnar umræður.
Tilgangur málstofanna er að fá ábendingar og tillögur sem nýst geta við áframhaldandi vinnu. Boðað er til tveggja
málstofa, á Egilsstöðum og í Reykjavík. Málstofurnar eru öllum opnar og hvetur nefndin alla þá sem láta sig málefni
skógræktar varða að taka þátt.
Haldnar verða tvær málstofur á eftirfarandi stöðum:
Hótel Héraði, Egilsstöðum, mánudaginn 7. nóvember kl. 13:00 - 15:00
Þjóðminjasafnið í Reykjavík, þriðjudaginn 8. nóvember kl. 14:00 - 16:00
http://www.umhverfisraduneyti.is/frettir/nr/1929
_______________________________________________________________________________________________
Stefnumótun.
Framtíðarsýn Landssamtaka skógareigenda 2011-2020
_____________________________________________________________________________________
Einstakt tækifæri.
22. október n.k. verður haldin ráðstefna í Kaldalóni í Hörpu, undir yfirskriftinni “Heimsins græna gull”. Ráðstefnan er
haldin á Ári skóga Sameinuðu þjóðanna 2011. Erlendir fyrirlesarar eru allir þekktir innan skógargeirans á evrópuvísu og
heimsvísu. Þetta er því ráðastefna sem fátt áhugafólk um skógrækt mun láta fram hjá sér fara.
ATH. Þeir sem vilja geta hlustað á fyrirlestra á íslensku á ráðstefnunni.
Rástefnugjaldið er vel niðurgreitt og er einungis 7.000.- (matur innifalinn)
Skráning á ráðstefnuna fer fram: http://www.skogur.is/rannsoknir-og-verkefni/radstefnur/radstefnur-arid-
2011/heimsins-graena-gull
_______________________________________________________________________________________________
Ágætu skógareigendur !
Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda verður haldinn að Eiðum á Héraði 7. og 8. október n.k. Sjá dagskrá fundarins
hér
Kostnaður á mann í tvær nætur í 2ja manna herbergi er kr. 22.000.-
Innifalið er allur fundarkostnaður, morgunmatur, kaffi, kvöldmatur, hádegismatur laugardag, hátíðarkvöldverður og ferð í
......skóg.
Fundurinn hefst kl. 17:00 á föstudeginum og lýkur formlega með árshátíð skógarbænda og afmælishátíð Héraðs- og
Austurlandsskóga á laugardagskvöldið.
Þátttakendur eru beðnir að tilkynna sig á tölvupóstfangið marianna@me.is fyrir 1. október.
Þeir sem koma á fundinn, en gista ekki, eru beðnir að skrá sig á tölvupóstfangið breidavad@emax.is
Ráðstefna LSE verður haldin í tengslum við aðalfundinn og stendur frá 13:00 til 16:30 föstudaginn 7. október.
Sjá dagskrá ráðstefnunnar hér
Aðalfundur jólatrjáaræktenda verður sömuleiðis haldinn í tengslum við aðalfund LSE og hefst klukkan 20:00 föstudaginn 7.
október og stendur til ca. 21:30:00.
Barstemmning á föstudags og laugardagskvöld þar sem drykkir verða seldir gegn vægu gjaldi/u.þ.b kostnaðarverði.
Með félagskveðju,
skógarbændur á Austurlandi.
_______________________________________________________________________________________________
Skógardagurinn mikli 2011 Sjá auglýsingu hér
Föstudagurinn 24. júní
19:00 Landssamtök sauðfjárbænda ásamt sauðfjárbændum á svæðinu
bjóða gestum og gangandi að smakka grillað lambaket.
Laugardagurinn 25. júní – Þessi skemmtilegi dagur !
10:00 Perlu-ganga frá Hússtjórnarskólanum á Hallormsstað upp í Bjargselsbotna
undir stjórn Hjördísar Hilmarsdóttur
12:00 Skógarhlaupið, 14 km um erfiða skógarstíga, í boði Alcoa
12:30 Skemmtiskokk fjölskyldurnar, 4 km sem allir geta tekið þátt í
Formleg dagskrá hefst í Mörkinni kl. 13:00
- Íslandsmótið í skógarhöggi
- Pjakkur og Petra taka skógardagslagið
- Heilgrillað Héraðsnaut borið fram af skógarbændum
- Skátarnir sjá um skógarþrautir fyrir unga og aldna
- Ingó veðurguð tekur lagið
- Pylsur í hundraðavís, ketilkaffi og lummur að hætti skógarmanna
- Hinn eini sanni Bjartmar Guðlaugsson tekur lagið
- Verðlaunaafhending í Skógarhlaupinu
- Íslandsmeistarinn í skógarhöggi krýndur
17:00 Allir fara heim saddir og kátir
_______________________________________________________________________________________________
Áhugaverð grein hérna
_____________________________________________________________________________________
Komið þið sæl ágætu félagar í FsV! - og takk fyrir síðast (á Hamri og Sögu)
Í tilefni af alþjóðlegu ári skóga (munið heimasíðuna www.arskoga2011.is) verða félagar í Félagi Trérennismiða með
sýnikennslu í trérennismíði ,,beint úr skóginum" á Fitjum á næsta sunnudag, 5. júní kl. 13- 16. Sjá meðfylgjandi. Kostar
2000 á mann - en félagsmenn í FsV fá 500 kr. afslátt. Sjá mynd hér
svo opna þessar elskur sölusýningu kl. 16, einnig á Fitjum. Þar verða ýmsir eigulegir munir. Sú sýning stendur í allt
sumar og er kannski meira fyrir ferðalanga en virðulega skógarbændur - en það væri nú gaman að sjá ykkur félagana á
sunnudaginn! Kaffi og með'í og gaman að læra ný handtök!
Látið mig vita ef þið getið komið
bestu kveðjur,
Hulda
e.s. svo er reyndar áhugaverður fyrirlestur á laugardaginn á Fitjum 4. júní kl. 14:00 -sjá nánar á
http://www.facebook.com/?ref=home#!/event.php?eid=134087259999726 og
http://www.skorradalur.is :
"Hvenær hófst landnám? - Hversu sannfróður var Ari fróði?
Landnám Íslands hófst allt að tveimur öldum fyrr en talið hefur verið.
Páll Theodórsson eðlisfræðingur hefur kafað í gögn fornleifafræðinga.
Þrjár óskildar aðferðir til tímasetningar sanna eldra landnám:
Kolefni-14 aldursgreiningar, örkolagreiningar og gjóskulög.
Páll mun kynna sannanir fyrir eldra landnámi og mun einnig ræða nokkuð um
útbreiðslu skóga á landnámstíð."
Aðgangur 1000 kr á mann og kaffi/meðlæti innifalið -
_______________________________________________________________________________________________
Kæru félagar í Félagi skógarbænda á Vesturlandi!
Aðalfundur okkar verður haldinn á Hótel Hamri í Borgarfirði þriðjudaginn 26. apríl kl. 18:00.
Helstu dagskrárliðir fundarins eru: sjá hér
_____________________________________________________________________________________
Fréttatilkynning frá Landssamtökum skógareigend
Í lok síðasta árs samþykktu Landssamtök skógareigenda (LSE) 15 ára átaksverkefni í akurræktun jólatrjáa.
Eins og flestum er kunnugt þá hefur innflutningur á jólatrjám verið mikill undanfarin ár og hlutur innlendra jólatrjáa að
hámarki einn þriðji af heildarsölu. Til að bregðast við þessari staðreynd þá hafa Landssamtök skógareigenda ákveðið að
hefja stórátak í ræktun jólatrjáa í öllum landshlutum. Hugmyndin er að mynda starfshópa vítt og breitt um landið með
áhugasömum einstaklingum sem hyggja á ræktun jólatrjáa. Að lágmarki þurfa að vera 5 ræktendur í hverjum hóp, en 12
að hámarki. Sá sem hyggur á þátttöku þarf að vera félagsbundinn í félagi innan Landssamtaka skógareigenda. LSE
leggur til uppskrift að jólatrjáaræktun sem nær frá upphafsskipulagi allt að sölu á jólatrjám.
Hver hópur vinnur saman næstu tólf árin og vinnur að sama markmiði, þ.e.a.s., að byggja upp atvinnugrein sem þróuð
verður með samstilltu átaki þeirra sem hana stunda.
LSE mun standa fyrir árlegum ársfundi jólatrjáaræktenda. Á þeim fundi geta ræktendur borið saman bækur sínar auk
þess sem boðið verður uppá fræðslu um ræktun jólatrjáa á þeim fundi. Leitað verður eftir stuðningi landshlutaverkefna í
skógrækt um skipulag ræktunarsvæða, faglegar leiðbeiningar, tilraunir m.a. með kvæmi og uppbyggingu skjóls á
ræktunarsvæðinu. Auk þess verður leitað eftir stuðningi rannsóknastöðvarinnar á Mógilsá um leiðbeiningar og rannsóknir
og LbhÍ við fræðslu um jólatrjáaræktun og hvatningu til nemenda skólans að stunda rannsóknir á skipulagi, ræktun og
markaðssetningu jólatrjáa.
Áætluð lok átaksverkefnis í akurræktun jólatrjáa verður árið 2025 og er gert ráð fyrir að akurræktun jólatrjáa verði þá
orðin markviss atvinnugrein í öllum landshlutum.
Áhugasamir einstaklingar geta haft samband við formenn í félögum skógareigenda eða við framkvæmdastjóra LSE á
netfangið bjorn@sudskogur.is.
_______________________________________________________________________________________________
Umsögn Landssamtaka skógareigenda (LSE) um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd nr.
44/1999, með síðari breytingum
Landssamtök skógareiganda gera verulegar athugasemdir við fyrirliggjandi drög að endurskoðun náttúruverndarlaga,
bæði hvað varðar vinnulag og inntak, og leggja til að þau verði lögð til hliðar í núverandi mynd.
Það er ljóst af yfirlýsingu umhverfisráðherra um mikilvægi víðtæks samstarfs við hagsmunaaðila, almenning og
sveitarfélög við endurskoðun náttúrverndarlaga, að undirbúningi frumvarpsins er stórlega ábótavant. Nær óskiljanlegt
er, í ljósi vilja ráðherra, að gengið hafi verið fram hjá heildarsamtökum skógarbænda og skógareigenda (LSE). Á vegum
þessara aðila er um 80% af allri nýgróðursetningu í landinu og undirbúningur atvinnugreinarinnar hefur staðið frá 1990.
Þá taka drögin nær eingöngu mið af mjög þröngum og umdeilanlegum náttúruverndarsjónarmiðum og munu verða
íþyngjandi fyrir allan landbúnað til framtíðar.
Nánar: Hér