Eldri fréttir
Landssamtök skógareigenda, Miðhúsum, 701 Egilsstöðum, Sími: 471 1365, Gsm: 860 2928, eiksf@mmedia.is


Þorrablót og fræðslufundur
Félagar í Félagi skógarbænda á Suðurlandi og Félagi skógarbænda á Vesturlandi
boða til fræðslufundar og þorrablóts skógarbænda
á Hótel Sögu laugardaginn 13. febrúar n.k.
Dagskrá:
Kl. 15:00 Bjarni Diðrik Sigurðsson prófessor við LbhÍ,
hvað getur skógurinn gefið okkur annað en timbur.
Kl. 15:45 Kaffihlé -
Kl. 16:00 Böðvar Guðmundsson áætlunarfulltrúi Sls,
tegundir og kvæmi í jólatrjáræktun.
Kl. 16:20 Aðalsteinn Sigurgeirsson forstöðumaður Mógilsár,
rannsóknir og þróun í skógrækt.
Kl. 17.05 Auður Ottesen ritstjóri,
útgáfa á fræðsluefni í skógrækt.
Kl. 17:25 Fundarslit
Fundurinn er í boði skógarbændafélaganna.
Klukkan 18:30 hefst þorrablót skógarbænda. Boðið veður upp á þorramat að hætti Hótel
Sögu. Verð á mann krónur 5.300.-
Þátttaka tilkynnist í tölvupóstfang bjorn@sudskogur.is eða í síma 480 1822 fyrir 1.
febrúar.
Þeir sem vilja gista á Hótel Sögu hafi samband við hótelið og panti hver fyrir sig gistingu.
Verð kr 9.000.- fyrir eins manns herbergi og krónur 10.000.- fyrir tveggja manna
herbergi. Innifalið í verðinu er frír aðgangur að Mecca Spa, morgunverður og frítt
þráðlaust internet. Tilkynnið við bókun að um er að ræða bændagistingu.
Stjórnir Félags skógarbænda á Suðurlandi og Félags skógarbænda á Vesturlandi,
Vilt þú skoða skógarhöggsvél?
Fyrir skömmu kom danskur skógarverktakinn Peter Laursen til Ísland í boði
skógræktarstjóra Skógræktar ríkisins. Tilefni ferðarinnar var að fá mat Peters á því hvort
komið væri að þeim tímapunkti í íslenskri skógrækt að hægt væri að nota skógarhöggsvél
til að takast á við þau stóru grisjunarverkefni sem framundan eru í þjóðskógum landsins.
Mat Peters var að hér væri orðin til verðmæt auðlind sem væri fyllilega sambærileg við
það sem gerðist í Danmörku. Stóru sitkagreni‐skógarnir í Skorradal væru af þeirri
stærðargráðu að þar væri hægt að nota stórvirkar skógarhöggsvélar. Sjá nánar hér
Mógilsársfréttir
Hafin er aftur útgáfu á fréttablaði Rannsóknastöðvar Skógræktar ríkisins á Mógilsá –
Mógilsárfréttum – og er stefnan að gefa það út 2-3 á ári. Þeir sem hafa áhuga á að
fylgjast með því hvað er í gangi hjá Rannsóknastöðinni geta nálgast Mógilsárfréttir á
slóðinni http://www.skogur.is/utgafa-og-fraedsla/utgefid-efni/mogilsarfrettir/
Jólahlaðborð FsV
Hið árlega Jólahlaðborð Félags skógarbænda á Vesturlandi verður haldið 27. nóvember á
Hótel Glym í Hvalfirði. Hefjum aðventuna í notalegu umhverfi og góðra vina hópi með
ljúfum mat.
Villibráðarjólahlaðborð: 7.900 kr
Gisting og stórt morgunverðarhlaðborð frá kl 9.00 – 12.00 daginn eftir: 8.900 kr
Áhugasamir vinsamlega tilkynnið um þátttöku fyrir 18. nóvember í síma: 869 8278 eða
toti@vesturland.is
Myndir Frá Norðurlandi
Formaður FsN Anna Ragnarsdóttir sendi okkur skemmtilegar myndir sem hægt er að sjá
hér