Eldri fréttir
Landssamtök skógareigenda,  Miðhúsum,  701 Egilsstöðum,  Sími: 471 1365,  Gsm: 860 2928,  eiksf@mmedia.is
Komið þið sæl ágætu félagar í FsV! - og takk fyrir síðast (á Hamri og Sögu)

Í tilefni af alþjóðlegu ári skóga (munið heimasíðuna www.arskoga2011.is) verða félagar í Félagi Trérennismiða með
sýnikennslu í trérennismíði ,,beint úr skóginum" á Fitjum á næsta sunnudag, 5. júní kl. 13- 16. Sjá meðfylgjandi. Kostar 2000
á mann - en félagsmenn í FsV fá 500 kr. afslátt.    Sjá mynd
hér    

svo opna þessar elskur sölusýningu kl. 16, einnig á Fitjum. Þar verða ýmsir eigulegir munir. Sú sýning stendur   í allt sumar
og er kannski meira fyrir ferðalanga en virðulega skógarbændur - en  það væri nú gaman að sjá ykkur félagana á
sunnudaginn! Kaffi og með'í og gaman að læra ný handtök!

Látið mig vita ef þið getið komið

bestu kveðjur,
Hulda

e.s. svo er reyndar áhugaverður fyrirlestur á laugardaginn á Fitjum  4. júní kl. 14:00 -sjá nánar á
http://www.facebook.com/?ref=home#!/event.php?eid=134087259999726 og
http://www.skorradalur.is :

"Hvenær hófst landnám?  - Hversu sannfróður var Ari fróði?

Landnám Íslands hófst allt að tveimur öldum fyrr en talið hefur verið.
Páll Theodórsson eðlisfræðingur hefur kafað í gögn fornleifafræðinga.
Þrjár óskildar aðferðir til tímasetningar sanna eldra landnám:
Kolefni-14 aldursgreiningar, örkolagreiningar og gjóskulög.
Páll mun kynna sannanir fyrir eldra landnámi og mun einnig ræða nokkuð um
útbreiðslu skóga á landnámstíð."

Aðgangur 1000 kr á mann og kaffi/meðlæti innifalið -  


_______________________________________________________________________________________


Kæru félagar í Félagi skógarbænda á Vesturlandi!
Aðalfundur okkar verður haldinn  á Hótel Hamri í Borgarfirði þriðjudaginn 26. apríl kl. 18:00.

Helstu dagskrárliðir fundarins eru: sjá
hér

_____________________________________________________________________________________


Fréttatilkynning frá Landssamtökum skógareigend

Í lok síðasta árs samþykktu Landssamtök skógareigenda  (LSE) 15 ára átaksverkefni í akurræktun jólatrjáa.
Eins og flestum er kunnugt þá hefur innflutningur á jólatrjám verið mikill undanfarin ár og hlutur innlendra jólatrjáa að
hámarki einn þriðji af heildarsölu. Til að bregðast við þessari staðreynd þá hafa Landssamtök skógareigenda ákveðið að
hefja stórátak í ræktun jólatrjáa í öllum landshlutum. Hugmyndin er að mynda starfshópa vítt og breitt um landið með
áhugasömum einstaklingum sem hyggja á ræktun jólatrjáa. Að lágmarki þurfa að vera 5 ræktendur í hverjum hóp, en 12 að
hámarki. Sá sem hyggur á þátttöku þarf að vera félagsbundinn í félagi  innan Landssamtaka skógareigenda. LSE leggur til
uppskrift að jólatrjáaræktun sem nær frá upphafsskipulagi allt  að sölu á jólatrjám.
Hver hópur vinnur saman næstu tólf árin og vinnur að sama markmiði, þ.e.a.s., að byggja upp atvinnugrein sem þróuð
verður með samstilltu átaki þeirra sem hana stunda.

LSE mun standa fyrir árlegum ársfundi jólatrjáaræktenda. Á þeim fundi geta ræktendur borið saman bækur sínar auk þess
sem boðið verður uppá fræðslu um ræktun jólatrjáa á þeim fundi.  Leitað verður eftir stuðningi landshlutaverkefna í skógrækt
um skipulag ræktunarsvæða, faglegar leiðbeiningar, tilraunir m.a. með kvæmi og uppbyggingu skjóls á ræktunarsvæðinu. Auk
þess verður leitað eftir stuðningi rannsóknastöðvarinnar á Mógilsá um leiðbeiningar og rannsóknir og LbhÍ við fræðslu um
jólatrjáaræktun og  hvatningu til nemenda skólans að stunda rannsóknir á skipulagi, ræktun og markaðssetningu jólatrjáa.

Áætluð lok átaksverkefnis í akurræktun jólatrjáa verður árið 2025 og er gert ráð fyrir að akurræktun jólatrjáa verði þá orðin
markviss atvinnugrein í öllum landshlutum.

Áhugasamir einstaklingar geta haft samband við formenn í félögum skógareigenda eða við framkvæmdastjóra LSE á
netfangið
bjorn@sudskogur.is.

_______________________________________________________________________________________


Umsögn Landssamtaka skógareigenda (LSE) um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd nr.
44/1999, með síðari breytingum

Landssamtök skógareiganda gera verulegar athugasemdir við fyrirliggjandi drög að endurskoðun náttúruverndarlaga, bæði
hvað varðar vinnulag og inntak, og leggja til að þau verði lögð til hliðar í núverandi mynd.
Það er ljóst af  yfirlýsingu umhverfisráðherra um mikilvægi víðtæks samstarfs við hagsmunaaðila, almenning og sveitarfélög
við endurskoðun náttúrverndarlaga, að undirbúningi frumvarpsins er stórlega ábótavant. Nær óskiljanlegt er, í ljósi vilja
ráðherra, að gengið hafi verið fram hjá heildarsamtökum skógarbænda og skógareigenda (LSE). Á vegum þessara aðila er
um 80% af allri nýgróðursetningu í landinu og undirbúningur atvinnugreinarinnar hefur staðið frá 1990. Þá taka drögin nær
eingöngu mið af mjög þröngum og umdeilanlegum náttúruverndarsjónarmiðum og munu verða íþyngjandi fyrir allan
landbúnað til framtíðar.
Ágætu skógareigendur !


9. október 2010.

Kostnaður á mann í tvær nætur í 2ja manna herbergi  með baði er kr. 14.450.-
Innifalið er allur fundarkostnaður, morgunmatur, kaffi, kvöldmatur, hádegismatur, hátíðarkvöldverður og ferð í Skorradal.

Fundurinn hefst kl. 16:00 á föstudeginum og lýkur formlega með árshátíð á laugardagskvöldið.  

Tækjasýning Garðheima verður á föstudeginum frá  kl. 14.00 til 16.00. Ýmis tæki til skógræktar verða til sýnis.

Á Fosshóteli í Reykholti er heilsulind sem gestir hafa frían aðgang að, þar eru nuddstólar, slökunarbekkur og birtumeðferðar
herbergi. Einnig eru heitir pottar á staðnum, takið með ykkur baðföt og sloppa.

Þátttakendur eru beðnir að tilkynna sig á Fosshótel í Reykholti á tölvupóstfangið   
reykholt@fosshotel.is  fyrir 1. október.

Þeir sem koma á fundinn, en gista ekki, eru beðnir að skrá sig á tölvupóstfangið
hrutsstadir@simnet.is


Sjá nánari dagskrá hér       

Með félagskveðju,
skógarbændur á Vesturlandi.

__________________________________________________________________________________________________


Haustferð Skógareigenda á Suðurlandi

Haustið er gjarnan tími uppgjörs, sumarönnum að mestu lokið og menn gera sér glaðan dag. Töðugjöldin gömlu hafa breyst
í uppskeruhátíðir,  blómadaga, kjötsúpuhátíðir, kartöfluhelgi. Nær 50 manna hópur  sunnlenskra skógarbænda og vina
þeirra notaði blíðviðrisdag í septemberbyrjun til að kynna sér tvö tilraunasvæði í skógrækt og upphaf sandgræðslunnar.
Afbragðs leiðsögn veittu þeir Aðalsteinn Sigurgeirsson, Böðvar Guðmundsson, Úlfur Óskarsson og Þorbergur Hjalti Jónsson,
sem allir gjörþekkja skógrækt á Suðurlandi.
lesa meira

Myndir úr ferðinni

__________________________________________________________________________________________________

Haustferð skógarbænda


Félag skógareigenda á Suðurlandi býður félagsmönnum sínum til haustferðar laugardaginn 4. september og er þess vænst
að þeir bjóði með sér fjölskyldu og vinum.  Eitt aðal tilraunasvæði skógræktar á Suðurlandi, að Mosfelli, verður skoðað undir
leiðsögn Aðalsteins Sigurgeirssonar, forstöðumanns á Mógilsá og Böðvars Guðmundssonar, áætlunarfulltrúa hjá
Suðurlandsskógum.  Einnig verður komið við á Reykjum og Snæfoksstöðum.  Rúta fer frá skrifstofu Suðurlandsskóga,
Austurvegi 1, kl. 11, hún mun verða við Skeiðavegamót um kl.  11,15.  Ráðgert er að komið verði til baka til Selfoss um kl.
17.  Félag skógareigenda á Suðurlandi hefur í nokkur ár, skipulagt skoðunar- og skemmtiferð á haustin, þar sem fræðst er
um árangur skógræktar á völdum stöðum.  Það er alltaf áhugavert að skoða hvaða tegundir koma best út og bera saman
skilyrði til ræktunar.  Einnig gefst tækifæri til að fræðast af sérfræðingunum sem verða með í ferðinni og reynslan sýnir að
margar spurningar vakna og alltaf er gott að bera saman bækur sínar.  Vonast er til að skógarbændur og  áhugafólk um
skógrækt fjölmenni í þessa ferð.


__________________________________________________________________________________________________


Jónsmessugangan, 23. júní.

Skógarbændur á Suðurlandi og gestir þeirra, hittust í góðu veðri á Kaldbak hjá Sigríði H. Heiðmundsdóttur og Viðari H.
Steinarssyni. Skógræktin þeirra var skoðuð og ýmsum vandamálum velt fyrir sér og dáðst að góðum árangri og mikilli elju og
natni heimamanna. Í fallegu rjóðri við húsið þeirra Sigríðar og Viðars, var síðan grillað og borðað og sungið og soðið upp á
ketilkaffinu sem var hreint afbragð, eins og alltaf. Hópurinn, um 40 manns, skemmti sér vel á þessum fallega stað og eru
þeim hjónum, Sigríði og Viðari færðar bestu þakkir fyrir samveruna og móttökurnar, einnig Klöru, dóttur þeirra, sem var
bústýran þetta kvöld. Með skógarkveðju, María E. Ingvadóttir, formaður FsS


__________________________________________________________________________________________________

Kæru félagar í Félagi skógarbænda á Vesturlandi !

Nú líður að okkar árlega skógardegi en hann er á afmælisdegi félagsins þann 23. júní. Nú munu þau Reynir og Björg á
Svarfhóli taka á móti okkur kl.18.00 og sýna okkur skógræktina sína. Svarfhóll er í Svínadal 301 Akranes,  best er að koma
vestanað eftir Hvalfjarðarvegi (47) og beygja inná Svínadalsveg (502) taka svo veginn til sem liggur að Hurðabaki og
Svarfhóli.    Við jarðarmörk Svarfhóls munu Reynir og Björg taka á móti okkur og leiða okkur áfram.  Kort


Tökum með okkur góða skapið, njótum samverstundar í skóginum og sjáum hvað þau Reynir og Björg hafa gert í sínum
skógi.
Meira

_______________________________________________________________________________________

Jónsmessuganga FsS, miðvikudagskvöldið 23. júní kl. 20.00.

Að venju er skógarbændum á Suðurlandi og gestum þeirra boðið í Jónsmessugöngu.  Nú verður farið í Kaldbak á
Rangárvöllum og hjónin Sigríður H. Heiðmundsdóttir og Viðar H. Steinarsson heimsótt.
Skógræktarsvæði verða skoðuð og boðið upp á veitingar.
Ketilkaffi og skógarmannasöngur er auðvitað staðalbúnaður Jónsmessusamkomunnar.
Gaman væri að sjá sem flesta.
Hér með fylgir kort af leiðinni í Kaldbak.