Eldri fréttir
Landssamtök skógareigenda, Miðhúsum, 701 Egilsstöðum, Sími: 471 1365, Gsm: 860 2928, eiksf@mmedia.is
Málþing um brunavarnir í skógi sem haldið var í lok maí gekk vonum framar. Heldur
fleiri mættu en gert var ráð fyrir í undirbúningi.
Ánægjulegt var að sjá fulltrúa frá nánast öllum stofnunum, fyrirtækjum og
félagasamtökum mæta á málþingið, sem koma að brunavörnum á einn eða annan hátt.
Það kom fram hjá flestum fyrirlesurum að brunavarnir í skógi eiga að vera með einföldu
sniði. Lög og reglur sem setja þarf til að tryggja öflugar brunavarnir eiga að vera
einfaldar, en hnitmiðaðar. Sama er að segja um framkvæmd brunavarna í skógum og
aðgerðaáætlnir fyrir slökkvistarf þarf að vera einfalt í framkvæmd.
Margt nýtt kom fram á málþinginu sem verður skoðað betur og nýtt í uppbyggingu í
brunavörnum. Inge Fjalestad forstjóri Skogbrand (tryggingarfélag norskra
skogareigenda í Noregi) flutti mjög áhugaverðan fyrirlestur og kom inn á ýmsilegt
fróðlegt sem snertir tryggingar skóga bæði fyrir bruna ásamt foki og snjósköðum.
Á næstunni verður unnið að frekara samstarfi allra þeirra sem að þessum málum koma.
Byggja þarf upp heilsteypta áætlun um brunavarnir í skógi. Lítið hefur verið unnið að
lögum og reglugerðum í þessu sambandi, en það er hlutur sem tekur lengstan tíma til
að allt fari að virka eins og það á að gera.
Bók um leiðbeiningar í skógar- og sinueldum er væntanleg, en hún verður mikil
hjálparhella til að samræma allar aðgerðir.
Landsamtök skógareigenda er að setja af stað mikla vinnu við að koma þessum málum í
gott lag. Bent er á því til staðfestingar samþykktir síðasta aðalfundar LSE:


Ráðstefna Nordgen skog og Skógræktar ríkisins
Dagana 19. – 20. ágúst verður ráðstefna á vegum nefndarinnar Norden skog (áður
NSFP) haldin á Selfossi, en þar fer á sama tíma fram norrænn ráðherrafundur um
skógarmál.
Ráðstefnan ber yfirskriftina Norrænir skógar í breyttu veðurfari og erindin, sem haldin
verða á ensku og sænsku/norsku/dönsku, eru af ýmsum toga. Fjallað verður um áhrif
loftslagsbreytinga á skóga, áhrif skóga á vatnsgæði og nýjar plágur, svo fátt eitt sé
nefnt.
Dagskrá
Skráningarblað
Mynd: Tóti
Nefnd um sölu á kolefnisbindingu hefur verið skipuð.
Í nefndinni sitja,
Anna Ragnarsdóttir, Norðurlandi,
Ari Skúlason, Landsbankanum
Ásvaldur Magnússon, Vestfjörðum
Björn Ármann Ólafsson, Austurlandi
Hulda Guðmundsdóttir, Vesturlandi
María E. Ingvadóttir, Suðurlandi
Nefndin hefur tekið til starfa og mun skila af sér eins flótt og auðið er.
Landsamtök skógareigenda tekur þátt í Landbúnaðarsýningunni á Hellu
Hellu dagana 22-24 ágúst næstkomandi.
LSE verður með skógargeiranum á útisvæði sýningarinnar.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Búnaðarsambands Suðurlands
http://www.bssl.is/
Starfshópur um jólatrjáarækt á Íslandi
Starfshópur hefur verið settur á laggirnar sem á að greina það sem við íslendingar getum
nýtt af reynslu Dana við ræktun jólatrjáa við Íslenskar aðstæður.
Starfshópinn skipa;
Bergrún Arna Þorsteinsdóttir formaður, Böðvar Guðmudnsson, Else Möller, Agnes Geirdal
og Jón Þór Birgisson.
Stjórnin Sls hefur rætt stöðu og stefnu Suðurlandsskóga í jólatrjáaræktun og telur brýnt
að móta reglur hvað varðar aðkomu verkefnisins að jólatrjáarækt á sínu svæði.
Mynd: Björgvin Örn Eggertsson
Meðlimir starfshópsins. Jón þór
Birgisson, Else Möller,
Bergrún Arna Þorsteinsdóttir,
Agnes Geirdal og Böðvar
Guðmundsson
Fagráðstefna skógargeirans 2009
Verður haldin í Reykjavík 16-17. apríl næstkomandi í sal Félagsheimilis Þróttar í Laugardal.
Sjá nánar hér
Mynd: Tóti
Mynd: Tóti
Ágætu skógarbændur
Endurmenntun LbhÍ vill vekja athygli á áhugaverðum námskeiðum í mars.
Sjá nánar hér
Aukið fjármagn til landshlutaverkefnanna í skógrækt
Samkvæmt áætlun um aðgerðir í atvinnumálum sem ríkisstjórnin kynnti fyrir skömmu hefur
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ákveðið að veita allt að 30 millj. kr. til
landshlutaverkefnanna í skógrækt. Áætlað er að sú upphæð skapi 10 ársverk.
Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir skógarbændur. Þó upphæðin sé ekki há, felst í þessu
framlagi viðurkenning á því stóra hlutverki sem landshlutaverkefnin hafa í atvinnu- og
auðlindasköpun á landsbyggðinni. Með þessu framlagi verður tryggt að ekki þurfi að
henda neinum plöntum sem verkefnin höfðu skuldbundið sig til að kaupa. Eftir sem áður
verður rekstur verkefnanna erfiður á þessu ári og allar færar leiðir til sparnaðar verða
nýttar.
Aðalfundur
Félag skógarbænda á Vesturlandi heldur aðalfund á Hótel Hamri í Borgarfirði fimmtudaginn
26. mars kl. 18:00 nánar
Ágætu skógarbændur
Þessa dagana er verið að auglýsa tvær námskeiðaraðir Grænni skóga I, önnur á
Suðurlandi sjá hér og hin á Vesturlandi sjá hér.